Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 688/1983

Gjaldár 1983

Lög nr. 75/1981, 99. gr., 100. gr. 8. mgr.  

Framsending ríkisskattanefndar til skattstjóra — Álagning — Kæruúrskurður — Nýr kæruúrskurður

Kærð er álagning opinberra gjalda gjaldárið 1983 og þess krafist að innsent skattframtal vegna þess árs verði lagt til grundvallar álagningu í stað áætlunar skattstjóra áður.

Með vísan til 8. mgr. 100. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, er kæru og skattframtali kæranda fyrir árið 1983 vísað til skattstjóra til meðferðar og uppkvaðningar nýs kæruúrskurðar.

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærunni ásamt skattframtali vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 1983 er vísað til skattstjóra til meðferðar og uppkvaðningar nýs kæruúrskurðar.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja