Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 422/1976

Gjaldár 1975

Lög nr. 8/1972  

Aðstöðugjald - Iðnlánasjóðsgjald

Kært var aðstöðu- og iðnlánasjóðsgjald. Í kæru kæranda segir m.a.:

„Skattstofan leggur aðstöðu- og iðnlánasjóðsgjald á áætlaðan byggingarkostnað pr. 31.12. 1974 kr. 51.100.000,-. Þessu mótmælir umbjóðandi minn, því verkinu var ekki lokið, fyrr en á árinu 1975 og verður þá fyrrgreindur byggingarkostnaður gjaldfærður og þá um leið aðstöðu- og iðnlánasjóðsgjaldsskyldur, ásamt þeim viðbótum, sem hafa komið á árinu 1975.“

Ríkisskattanefnd féllst á sjónarmið kæranda og felldi gjöldin niður.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja