Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 492/1976

Gjaldár 1975

Lög nr. 14/1965  

Launaskattur

Kærandi, sem var starfandi heimilislæknir, fór fram á lækkun álagðs launaskatts 1975 um kr. 20.006,- vegna launatekna kr. 608.344,- frá ríkisspítulunum. Samkvæmt framtali kær-anda námu hreinar tekjur hans af læknisstarfi kr. 3.186.168,-.

Með tilvísun til 7. málsgr. 9. gr. reglugerðar nr. 119/1965 um launaskatt staðfesti ríkisskattanefnd úrskurð skattstjóra.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja