Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 816/1974

Gjaldár 1973

Lög nr. 68/1971, 11. gr. A-liður  

Rekstrarkostnaður, útför starfsmanns

Kærandi færði til gjalda á skattframtali sínu 1973 kostnað kr. 19.924,00 vegna útfarar starfsmanns.

Skattstjóri taldi, að hér væri ekki um almennan rekstrarkostnað kæranda að ræða. Því væri ekki að finna heimild í lögum um frádrátt frá tekjum kæranda vegna þessa kostnaðar og synjaði því kæranda um frádráttinn.

Kærandi áfrýjaði úrskurði skattstjóra til ríkisskattanefndar og gerði þá kröfu, að téður frádráttur væri heimilaður.

Af hálfu ríkisskattstjóra var gerð svofelld krafa:

"Að úrskurður skattstjóra verði staðfestur, þar sem hér er ekki um rekstrarútgjöld skv. A-lið 11. gr. laga nr. 68/1971 að ræða."

Úrskurður skattstjóra var staðfestur með vísan til forsendna hans.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja