Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 97/1974

Gjaldár 1973

Reglugerð nr. 9/1976, 1. gr.   Lög nr. 68/1971, 12. gr. C-liður  

Ferðakostnaður

Kærandi gerði þá kröfu að fá til frádráttar hluta af rekstrarkostnaði eigin bifreiðar eða kr. 8.000,-, en kærandi var skráður á skip sem stundaði veiðar frá verstöð fjarri heimili hans. Skattstjóri synjaði kæranda um þennan frádrátt.

Í úrskurði ríkisskattanefndar segir:

"Frádrátt frá skattskyldum tekjum gjaldenda ber því aðeins að veita að til þess sé ótvíræð heimild. Lög um tekjuskatt og eignarskatt nr. 68/1971 hafa eigi að geyma heimild til frádráttar á ferðakostnaði gjaldþegns milli heimilis og vinnustaðar, þegar undan er skilið ákvæðið í C-lið 12. gr. laganna, sem ekki þykir eiga hér við, sbr. einnig reglugerð nr. 245/1963, 32. gr. C.

Með þessari athugasemd ber að staðfesta úrskurð skattstjóra."

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja