Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 571/1975

Gjaldár 1974

Lög nr. 68/1971, 37. gr.  

Tilkynningar

Skattstjóri felldi niður tilfærðan símakostnað kæranda, sem var sölumaður hjá fasteignasölu í Reykjavík. Var skattþegni ekki gert viðvart um breytinguna.

Í úrskurði ríkisskattanefndar segir:

"Skattstjóri fór með tilkynningu um breytingu þá, sem hann hugðist gera á framtali kæranda eftir 2. og 3. málslið 37. gr. laga nr. 68/1971. Í þessu tilviki bar að gefa kæranda kost á, að koma að skýringum og andsvörum áður en ákvörðun var tekin um breytingu á framtalinu, samkvæmt 4. málslið greinarinnar. Með vísun til þessa ber að taka kröfu kæranda til greina."

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja