Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 796/1974

Gjaldár 1973

Lög nr. 68/1971, 40. gr, 41. gr.  

Frávísun

Kærandi sendi ríkisskattanefnd kæru á úrskurði skattstjóra ásamt fylgiskjölum. Ríkisskattstjóri krafðist frávísunar á þeirri forsendu að kæran væri óundirrituð. Ríkisskattanefnd gaf kæranda kost á að bæta úr þessum galla. Þar sem það var ekki gert, var litið svo á að kærandi hefði fallið frá kröfu sinni og kærunni vísað frá.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja