Úrskurður yfirskattanefndar

  • Dánarbú
  • Frestun söluhagnaðar

Úrskurður nr. 407/1997

Gjaldár 1995

Lög nr. 75/1981, 2. gr. 1. mgr. 5. tölul., 13. gr.  

A, sem frestað hafði skattlagningu söluhagnaðar vegna sölu báts á árinu 1992 í framtali vegna þess árs, andaðist í september 1994. Fallist var á kröfu dánarbús A um að hinn frestaði söluhagnaður yrði færður til lækkunar kaupverði atvinnuhúsnæðis sem A keypti skömmu fyrir andlát sitt á árinu 1994 með vísan til gagna til staðfestingar því að bindandi kaupsamningur hefði komist á fyrir andlátið.

I.

Málavextir eru þeir að A, sem lést 1. september 1994, hafði á árinu 1992 fengið heimild til frestunar skattlagningu söluhagnaðar samkvæmt heimild í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, vegna sölu báts á árinu 1992. Með bréfi, dags. 24. júlí 1995, tilkynnti skattstjóri erfingja kæranda að hann hefði fært áðurnefndan söluhagnað til tekna á skattframtali A með vísan til 95. gr. laga nr. 75/1981.

Með bréfum, dags. 5. ágúst og 19. október 1995, kærði umboðsmaður kæranda umrædda ákvörðun skattstjóra. Krafðist hann þess að á móti tekjufærslu frestaðs söluhagnaðar yrði heimiluð fyrning í eignarhluta í Síðumúla í Reykjavík, en A hefði skömmu fyrir andlát sitt fest kaup á þeirri eign.

Skattstjóri synjaði kröfu umboðsmanns kæranda með kæruúrskurði, dags. 22. desember 1995. Taldi skattstjóri að ekki hefði verið ótvírætt sýnt fram á að kaup nefndrar eignar hefðu verið komin á fyrir andlát A.

Með kæru, dags. 18. janúar 1996, hefur umboðsmaður kæranda skotið kæruúrskurði skattstjóra til yfirskattanefndar, sbr. greinargerð, dags. 22. sama mánaðar. Rekur umboðsmaðurinn forsögu málsins um sölu A á bát á árinu 1992, en frestaður söluhagnaður hafi numið 4.067.638 kr. Hafi hún verið meðvituð um skattakvöð þessa og að ef hún fjárfesti í atvinnuhúsnæði heimiluðu skattalög fyrningu þessa frestaða söluhagnaðar yfir á þá fjárfestingu. Því hafi verið búið að svipast um eftir slíkri fjárfestingu frá því síðla árs 1993. Í ágústmánuði 1994 hafi komist á bindandi samkomulag á milli V hf. og A um kaup á atvinnuhúsnæði við Síðumúla í Reykjavík. Hafi verið fastmælum bundið að tiltekinn lögmaður kæmi frá Akureyri til Reykjavíkur föstudaginn 2. september til að aðstoða A við kaupin, en hún hafi látist snögglega þann 1. sama mánaðar. Sé því skiljanlegt að frágangur kaupsamnings hafi dregist við slíkar aðstæður, en hann hafi síðan verið gerður 19. október 1994. Við gerð hans hafi orðið þau mistök að hann var fyrst gerður á nafn B, eins barna A, og síðar hafi nöfn hinna barnanna einnig verið færð inn á kaupsamninginn í stað þess að gera samninginn í nafni dánarbúsins, því aðilum hafi verið ljóst að verið væri að fullnægja loforði A í lifanda lífi. Bankainnstæður dánarbúsins hafi tryggt fjármögnun samningsins og eignin hafi komið til skipta við frágang dánarbúsins hinn 23. nóvember 1994. Ljóst sé að munnleg loforð séu bindandi þótt augljóslega geti verið erfiðleikum háð að sannreyna þau. Þá fylgir kærunni yfirlýsing fasteignasölunnar Húsvangs, dags. 1. desember 1995, þar sem atvikum málsins sé lýst og staðfest að bindandi samkomulag hafi komist á milli aðila í ágústmánuði 1994 og yfirlýsing seljanda eignarinnar, erfingja og lögmanns A um tildrög málsins sem sýslumaðurinn í Reykjavík hafi fallist á og þinglýst. Ekki liggi í augum uppi á hvern hátt hægt sé að sannreyna munnleg loforð á frekari hátt en hér hafi verið gert þar sem allir aðilar hafi staðfest málsatvik og vandséð sé hvernig skattyfirvöld geti hundsað gögn sem sýslumaður hafi metið gild í þessu sambandi. Sé því gerð sú krafa að frestaður söluhagnaður, upphaflega 4.067.638 kr., en framreiknaður með verðbreytingarstuðli 4.271.427 kr., verði fyrndur á móti kaupverði fasteignarinnar Síðumúla …, Reykjavík.

Með bréfi, dags. 26. mars 1997, hefur ríkisskattstjóri fyrir hönd gjaldkrefjenda lagt fram svofellda kröfugerð:

„Fyrir yfirskattanefnd hafa verið lögð gögn til staðfestingar því að kaup á fasteigninni Síðumúli … hafi í raun falið í sér ráðstöfun dánarbús A. Með hliðsjón af því og þeirri reglu sem 47. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt  og eignarskatt, þykir gefa vísbendingu um varðandi skattalega stöðu erfingja, fellst ríkisskattstjóri á kröfu kæranda.“

II.

Með vísan til þeirra gagna sem lögð hafa verið fram til staðfestingar því að bindandi samkomulag hafi verið komið á um kaup á fasteigninni Síðumúla … fyrir andlát A er fallist á kröfu kæranda. Af niðurstöðu leiðir að tekjufærð fjárhæð áður frestaðrar tekjufærslu söluhagnaðar lækkar vegna niðurfellingar 10% álags í 4.271.314 kr. og á móti kemur sérstök fyrning söluhagnaðar að sömu fjárhæð sem afskrifast í eignarhluta að Síðumúla …, Reykjavík. Þá leiðréttingu þykir bera að gera með úrskurði þessum að dagafjöldi til og með andlátsdægurs ákvarðast 244 dagar í stað 243 daga sem leiðir til að hluti A í áður dreifðri tekjufærslu söluhagnaðar hækkar um 4.272 kr. og til lækkunar um sömu fjárhæð til skattlagningar hjá dánarbúinu.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Fallist er á kröfu kæranda. Sjá gjaldabreytingu á bls. 3.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja